1.9.2007 | 00:54
Frjálsar færslur
Mikið var rætt um ummæli Dolla á Rúv í dag um blökkumanninn Gay. Einstaklega heppilega að orði komist og alveg bráðfyndið. Nú sit ég sem límdur með UHU fyrir framan sjónvarpið og verið er að sýna frá HM í frjálsum og er það hinn einstaklega skeleggi hlaupari Sigurbjörn Árni Arngrímsson sem lísir því er fyrir augu ber. Honum og fleiri áhorfendum til mikillar gremju er ótt og títt sýnt frá 50km göngu karla. Sem lítur út eins og 50km Gay pride í stuttbuxum og hlýrabol. Þegar búið var að syna stanslaust frá göngu útá götu í 10 mínútur fór Sigurbjörn að tala um það að Ástralinn sem var í forystu væri líklega frægastur fyrir það að faðir hans var Ástralíumeistari í keilu á 8. áratugnum. Ótrúlegur hæfileiki og rakin snilld hjá téðum þuli að afreka það að fá mig til að glotta út í annað við að hlusta á lýsingu frá 50 km göngu.
Annars verð ég að minnast á einstaklega gáfulegt komment sem hrökk útúr Jóni Arnari Ingvarssyni er hann var við annan mann að lýsa leik Finnlands og Íslands í körfuknattleik um síðustu helgi. Er líða tók á leikinn var einn Íslensku leikmannanna staddur á vítalínunni og nýtti ekki skot sín vel fremur en aðrir landar hans í leiknum. Var Jóni Arnari þá að orði: "Ef Íslendingar hefðu nýtt vítaskot sín betur í leiknum, væri staðan líklega önnur"
Svo mörg voru þau orð
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.8.2007 | 01:32
Bárujárn
Það rifjaðist upp fyrir mér nú á dögunum atvik nokkuð er gerðist fyrir nokkrum árum síðan. Þannig er mál með vexti að fyrir um áratug síðan er ég var ungur piltur og gekk í skóla í Reykjavíkurhreppi, þá bjó ég við nokkra manna fulltyngi við Mánagötu í 101 Reykjavík. Eina helgina þennan góða vetur hélt ég allmikið teiti og vinir oss úr Borgar og Akranesi mættu á staðinn. Eftir allnokkra drykkju á kenjóttum drykkjum á föstudags kveldi þurfti ég nauðsynlega að halda útfyrir hússins dyr ásamt félögum mínum nokkrum. Þar er ég bjó í tvíbíli þurfti ég að ganga niður tröppur er voru staðsettar innandyra. Á leið niður tröppurnar mætti ég forkunnarfagurri snót er ég kenndi öngvin deili á. Er ég mætti stúlkukindinni spurði ég hvurra manna hún væri og hvaða nafn hún bæri. "Ég heiti Bára" svaraði snótin með mjóróma og undurfagurri röddu. Ég nam staðar í tröppunum og vissi vart hvaðan á mig stóð veðrið og þessi forkunnar fegurð snótarinnar og kvað þá upp þessa stöku:
Eftir langan leik á lakinu
og ástarelda flæði.
Liggur Bára á bakinu
barmafull af sæði
Ekki segir meir af ferðum þessarar stúlku þetta kveld en þó skal taka fram að staka þessi er frumsamin en þó alls ekki eftir sjálfan mig
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.8.2007 | 23:08
Dagar!!!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.8.2007 | 17:49
nýjar myndir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.8.2007 | 21:00
nám eða skynsemi
Er ég var ungur maður lá það afar vel við mér að læra og hafði ég ávallt afbragðs einkunir í skóla. Lærði að lesa 4 ára gamall og las fyrir bekkjarfélaga mína i 6 ára bekk, reikningur var eins og opin bók, þó ekki bankabók, fyrir mér. Ég þótti ogsvo slunginn í hinum ýmsu íþróttum, en það er hinsvegar önnur saga. Þegar ég svo tók upp á því að eldast á seinni árum fór námsárangrinum að hraka og er á unglingsárin var komið kynntist ég Bakkusi frænda og ég komst að þeirri niðurstöðu að æfingin skapar eigi meistarann, enda búinn að æfa körfubolta í 10 ár og spila samtals 10 mínútur á ferlinum. Einnig þótti mér skynsamlegra að sitja heima í stofu og horfa á íþróttir í imbakassanum og þá helst með krús í hönd. Fann það líka út að ég væri barasta fluggáfaður og þyrfti ekkert að stunda skóla yfir haus.
Ég lét þó tilleiðast og hélt áfram námi í FVA og FB, án teljanlegs árangurs, og kláraði aldrei það sem til þarf svo húfan kæmist á höfuð vort. Ýmislegt hef ég svo reynt eftir að skólagöngunni lauk, fjarnám var ekki að gera sig því sjálfsaginn var ekki til staðar. Leiðsöguskólann í Kópavogi reyndi ég, en eigi var hann að gera sig því fjármunir voru ekki til staðar. Fór yfir á heftinu eins og sagt var í den tid. Nú er svo komið að ég er kominn í draumavinnu við mitt hæfi og kann afar vel við hana sem slíka. Hef hugsað mér að sækja námskeið og slíkt til að auka hæfni mína í því starfi og tekjumöguleika
Þó hefur svo verið síðustu ár að almúginn er ávallt að býsnast yfir lærdómsleysi mínu og vill ólmur senda mig í eitthvert nám. Aldrei hefur mér þótt það viðunandi hugmynd, enda hef ég ekki vitað hingað til hvað ég vil verða þegar ég verð stór. En nú veit ég það... ég ætla að verða feitari þegar ég verð stór!! Síðastliðna nótt hinsvegar sannfærðist ég um að nám er öngvan veginn fyrir minn snúð. Því mig dreymdi að ég væri að byrja í FVA á nýjan leik. Þegar svo kom að því að hringt væri inn í fyrsta tíma fann ég hvurgi skólasekk minn. Fór svo að ég komst aldrei í kennslustundina og var fyrir vikið rekinn úr skólanum.
Skýr skilaboð takk fyrir
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2007 | 01:51
Jæja þá er það byrjað
Það er árviss viðburður í ágúst að það vakni hjá manni Tottenham spenningur, enda annálaður Spurs aðdáandi og hef verið í rúm 20 ár. En ég hefi lært af reynslunni og er gjörsamlega rúinnöllum væntingum fyrir hvert tímabil. Bara eftirvænting að sjá nýja leikmenn spila fyrir mitt félag.
Ég horfði á leikinn í kveld og verð nú að segja að það var ekki heil brú í þessari spilamennsku minna manna. Lið sem ætlar sér að stefna á Meistaradeildar sæti getur ekki leyft sér að tefla fram Anthony Gardner í vörninni. Þeim er reyndar vorkunn þar sem öll varnarlínan að undanskildum Chimbonda er meidd. Ekki bætti úr skák að ungstirnið Younnes Kaboul meiddist eftir 15 mínútur (um leið og ég byrjaði að horfa) Það væri reyndar líklega bót í máli ef Chimbonda væri meiddur líka, því hann var arfaslakur og staddur lengst úti á túni.
Miðjan var ekki með í leiknum. Út með Jenas med det samme takk fyrir, og engir kantmenn, Steed reyndar nokk sprækur og Routledge öflugur eftir að hann kom inn, alltof seint reyndar. Hvar er svo Taraabt?? Já eða Kevin Prince?? Ég er mjög heitur fyrir Prince Boateng einhverra hluta vegna og hlakka mikið til að sjá hann spila.
Já sem sagt ég er myrkur í máli og það er varla að ég þori að horfa á Derby leikinn á laugardag, vonandi verður maður fjarverandi og máski nærri góðu gamni en að horfa á þann hrylling
![]() |
Everton vann Tottenham á White Hart Lane, 3:1 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.8.2007 | 01:39
Jibbí!!!!
![]() |
Hleypur um berrössuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2007 | 18:40
Þvílík meðferð
![]() |
Lindsay Lohan þrífur klósettið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2007 | 11:26
Hvílíkt grín
Ég sá síðari hálfleikinn hjá DC United og LA Galaxy í gærkveldi og gat nú vart orða bundist yfir þessum skrípaleik í kringum Beckham kallinn. Leikurinn sem slíkur var nú ágætur, en fárið í kringum Beckham var með slíkum ólíkindum að maður gat ekki annað en skellt upp úr og brosað útí bæði.
Kaninn var með sérstaka "Beckham cam" allan leikinn og fylgdist með hverju fótmáli kappans og ávallt er hann stóð á fætur eða hreyfði sig var Zoomað inn á "Beckham cameruna", gilti þá einu hvort hann var að fá sér vatnssopa, klóra sér í pungnum eða að gera sig klárann fyrir innáskiptingu. Þegar hann loks kom inná ætlaði allt um koll að keyra, harðsnúnustu nunnur rennblotnuðu í sætum sínum og fílefldir trukkabílstjórar görguðu sig hása. Svo loks er hann kom nú inn á sparkvöllinn tók ekki betra við. Í hvert sinn er hann snerti tuðruna ætlaði allt um koll að keyra og fagnaðarlátunum aldrei að linna, hvort heldur hann var að taka aukaspyrnu ellegar innkast.
Frammistaða Beckhams í leiknum var nú alfarið ekkert til að hrópa húrra yfir, hann "gat ekki blautann" eins og krakkarnir segja. En það að hann hafi ekki sýnt sitt besta, eða að lið hans hafi tapað virtist ekki skipta nokkru máli þegar upp var staðið.
Ég verð nú samt að segja eftir að hafa séð nokkra leiki í MLS síðustu vikur að gæðin eru mun meiri en ég bjóst við. Oft á tíðum spilaður ágætis bolti þarna í Bandaríkjahreppi
![]() |
Tap hjá Beckham í fyrsta leiknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.8.2007 | 01:40
Talandi um a þjóðfélagið sé að breytast
Ég hef áður imprað á því í ræðu, riti og lærðum greinum hversu hlýjan hug ég ber til lesturs veðurfregna í útvarpi. Er ég dvaldi sem barn í húsum afa og ömmu upp til sveita í gamla daga var ávallt sussað á mann er veðurfregnir voru lesnar á Rás1. Afi sat þá álútur við eldhúsborðið með kaffibolla og oftar enn ekki matarkex með talsverðri smjörklípu á, vitanlega var pípusterturinn aldrei langt undan. Þó gamli hafi nú máski getað rýnt í veðrið með því að hlusta á og fylgjast með fuglunum, var þó ávallt afar mikilvægt að ná að hlýða á títtnefndar veðurfregnir á Gömlu gufunni. Sérlega varð athyglin mikil er heyannir nálguðust, ellegar kaupstaðaferð var framundan og þá mátti ekki óhlýðnast veðurguðunum.
Þessar minningar hrannast ávallt upp í huga mínum er ég heyri veðurfregnirnar nú til dags á Rás1 og þykir mér mjög þægileg tilfynning að glenna eyrun við þær. Þó ekki muni ég nú nöfn veðurfregnamanna og kvenna í gegnum tíðina, þá er það gott og gegnt íslenskt mál sem þar er notað og öll þessi ramm íslensku bæjarnöfn sbr. Mánárbakki, Gjögur, Fontur o.fl sem sitja í minningunni.
Nú hin síðari ár hef ég helst náð á veðurfréttirnar á föstu og laugardagskvöldum þegar ég sit heima í rólegheitum, einn með sjálfum mér og hlýði á næturvakt Rásar2, þá fylgir veðrið iðulega í kjölfarið á fréttum kl 1.
Í kvöld brá svo við að ég var í slíkum rólegheitum einn í koti sökum slappleika og naut þess að taka lífinu með ró. Er klukkan sló 1 eftir miðnáttu var komið að fregnum og veðurfregnum í kjölfarið. Er veðurfregnirnar hófust mátti minnstu muna að fölsku tennurnar hrykkju ofan í mig, en þar sem ég hef ekki falskar gerðist það eigi. Ástæðan fyrir þessum viðbrögðum var nefnilega sú að veðurfregnalesarinn var af erlendu bergi brotin, ung dama líklegast af Slavnesku kyni. Ekki skildi ég framburðinn á nafni hennar. En henni til hróss má þó segja að henni tókst nokk vel upp með framburðinn. Ég set þó ákveðnar spurningar við slíkan ráðahag að láta erlendan aðila lesa annað eins ramm íslenskt. Er svona mikil mannekla á Veðurstofunni eða hvað? Er verið að spara hjá RÚV og ráða erlent vinnuafl á lægri launum, líkt og tíðkast í byggingariðnaði? Nei ég trúi því varla fyrr en í harðbakkann slær.
Nú munu máski einhverjir er lesa þetta fá út þá niðurstöðu að mér sé illa við fólk af erlendu bergi brotið, en auðvitað er það fyrrukennd fjarstæða. Ég á marga erlenda vini og þar að auki útlenska kærustu. Þetta eru bara vangaveltur og hugrenningar sem skoppuðu upp í huga mér við útvarpshlustun í kvöld
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)