nám eða skynsemi

Er ég var ungur maður lá það afar vel við mér að læra og hafði ég ávallt afbragðs einkunir í skóla.  Lærði að lesa 4 ára gamall og las fyrir bekkjarfélaga mína i 6 ára bekk, reikningur var eins og opin bók, þó ekki bankabók, fyrir mér.  Ég þótti ogsvo slunginn í hinum ýmsu íþróttum, en það er hinsvegar önnur saga.  Þegar ég svo tók upp á því að eldast á seinni árum fór námsárangrinum að hraka og er á unglingsárin var komið kynntist ég Bakkusi frænda og ég komst að þeirri niðurstöðu að æfingin skapar eigi meistarann, enda búinn að æfa körfubolta í 10 ár og spila samtals 10 mínútur á ferlinum.  Einnig þótti mér skynsamlegra að sitja heima í stofu og horfa á íþróttir í imbakassanum og þá helst með krús í hönd.  Fann það líka út að ég væri barasta fluggáfaður og þyrfti ekkert að stunda skóla yfir haus.  

Ég lét þó tilleiðast og hélt áfram námi í FVA og FB, án teljanlegs árangurs, og kláraði aldrei það sem til þarf svo húfan kæmist á höfuð vort.  Ýmislegt hef ég svo reynt eftir að skólagöngunni lauk, fjarnám var ekki að gera sig því sjálfsaginn var ekki til staðar.  Leiðsöguskólann í Kópavogi reyndi ég, en eigi var hann að gera sig því fjármunir voru ekki til staðar.  Fór yfir á heftinu eins og sagt var í den tid.  Nú er svo komið að ég er kominn í draumavinnu við mitt hæfi og kann afar vel við hana sem slíka.  Hef hugsað mér að sækja námskeið og slíkt til að auka hæfni mína í því starfi og tekjumöguleika

 

Þó hefur svo verið síðustu ár að almúginn er ávallt að býsnast yfir lærdómsleysi mínu og vill ólmur senda mig í eitthvert nám.  Aldrei hefur mér þótt það viðunandi hugmynd, enda hef ég ekki vitað hingað til hvað ég vil verða þegar ég verð stór.  En nú veit ég það... ég ætla að verða feitari þegar ég verð stór!!  Síðastliðna nótt hinsvegar sannfærðist ég um að nám er öngvan veginn fyrir minn snúð.  Því mig dreymdi að ég væri að byrja í FVA á nýjan leik.  Þegar svo kom að því að hringt væri inn í fyrsta tíma fann ég hvurgi skólasekk minn.  Fór svo að ég komst aldrei í kennslustundina og var fyrir vikið rekinn úr skólanum. 

 

Skýr skilaboð takk fyrir 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband