Færsluflokkur: Tónlist

Mexíkósk söngdrottning á Íslandi

Svo virðist sem samband milli Mexíkó og Íslands hafi aukist gífurlega frá því ég og Carmen fórum að rugla saman reitum fyrir 1 og hálfu ári síðan.  Forsetinn var nýverið staddur í Mexíkó ásamt föruneyti,  Björk var með tónleika þar í desember, Vesturport er að sýna kommúnuna þar þessa dagana, Gael Garcia hefur verið að leika í sömu sýningu á Íslandi, Sigurrós er að fara halda tónleika ytra í sumar og það nýjasta er myndband sem Carmen benti mér á með Mexíkóska ungstirninu Ximena Sarinana.  Ung og efnileg söngkona sem tók upp tónlistarmyndband hér á landi.  Ansi gaman að þessu flotta myndbandi

 

Linkurinn er hér:

 

http://mx.youtube.com/watch?v=lC_6DPOxBAc 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband